Hoppa yfir valmynd
Táknmál

Innviðaráðuneytið

Sölvhólsgötu 7

101 Reykjavík

Sími: 545 8200

Netfang: [email protected]

Kt. 580417-0780

Afgreiðsla ráðuneytisins er opin virka daga kl. 8.30–16.00.

Verkefni innviðaráðuneytisins ná til fjölmargra sviða þjóðfélagsins og varða meðal annars samgöngur, sveitarstjórnar- og byggðamál, grunnskrár, húsnæðis- og mannvirkjamál og skipulagsmál. Nýtt og öflugt innviðaráðuneyti tekst á við nýja tíma. Hlutverk þess er að líta eftir, upplýsa og leiða samfélagið til aukinna lífsgæða.

Innviðaráðherra er Sigurður Ingi Jóhannsson. Ráðherra fer með yfirstjórn ráðuneytisins og ber ábyrgð á öllum stjórnarframkvæmdum þess. Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra. Verkefni ráðuneytisins eru skilgreind í forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

Verkefni innviðaráðuneytisins skiptast á fjórar skrifstofur en auk þess er unnið í teymum þvert á skrifstofur:

  • Skrifstofa húsnæðis- og skipulagsmála
  • Skrifstofa samgangna
  • Skrifstofa stefnumótunar og fjárlaga
  • Skrifstofa sveitarfélaga og byggðamála

Innviðaráðuneytið

Heildstæð stefnumótun í húsnæðismálum lögð fram í fyrsta sinn

Tillaga til þingsályktunar um húsnæðisstefnu fyrir árin 2024-2038 ásamt aðgerðaáætlun fyrir árin 2024-2028 var lögð fram á Alþingi í nóvember 2023. Með tillögu til þingsályktunar um húsnæðisstefnu er í fyrsta sinn sett fram heildstæð stefnumótun í húsnæðismálum á landsvísu sem hefur að leiðarljósi að tryggja að öll búi við húsnæðisöryggi í víðtækum skilningi.

 

Stefna í málefnum sveitarfélaga 2024-2038 samþykkt

Þingsályktun um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024-2038 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2024-2028 var samþykkt á Alþingi þann 5. desember 2023. Með áætluninni er stuðlað að samræmdri stefnumótun ríkis og sveitarfélaga í málefnum sveitarfélaganna. Meginmarkmið áætlunarinnar eru  að byggja upp öflug, sjálfbær sveitarfélög um land allt.

Hvað gerum við

Verkefni innviðaráðuneytisins ná til fjölmargra sviða þjóðfélagsins og varða meðal annars samgöngur, sveitarstjórnar- og byggðamál, grunnskrár, póstþjónustu, húsnæðis- og mannvirkjamál og skipulagsmál. Innviðaráðherra fer með yfirstjórn ráðuneytisins. Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra.

Innviðaráðuneytið á Facebook

Nánar

RÁÐUNEYTIÐ VEKUR ATHYGLI Á...

Svandís Svavarsdóttir

Innviðaráðherra

Svandís Svavarsdóttir

Svandís Svavarsdóttir tók við embætti innviðaráðherra 9. apríl 2024. Hún var sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra frá 28. nóvember 2021 en embættið fékk heitið matvælaráðherra 31. janúar 2022. Svandís er fædd á Selfossi 24. ágúst 1964. Stúdentspróf MH 1983. BA-próf í almennum málvísindum og íslensku frá HÍ 1989. Stundaði framhaldsnám í íslenskri málfræði við HÍ 1989–1993. Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis suður frá árinu 2009. Umhverfisráðherra 2009–2012. Umhverfis- og auðlindaráðherra 2012–2013. Heilbrigðisráðherra 2017-2021



Samráðsgátt

Samráðsgátt stjórnvalda er á vefslóðinni island.is/samradsgatt. Þar er að finna áform um lagasetningu, drög að lagafrumvörpum og reglugerðum, skjöl um stefnumótun (t.d. drög að stefnum) og fleira. Hægt er að senda inn umsögn eða ábendingu og jafnframt er mögulegt að gerast áskrifandi að sjálfvirkri vöktun upplýsinga.  

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum