C.17. Grænir iðngarðar
Aðgerðin er í vinnslu | |
---|---|
Tengiliður
Kjartan Ingvarsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu - [email protected]
Verkefnið
Markmið: Að nýta betur tækifæri til uppbyggingar grænnar atvinnustarfsemi sem byggist á svæðisbundnum styrkleikum.
Stutt lýsing: Greint verði hvernig hvetja megi til uppbyggingar grænna iðngarða sem byggjast á hringrásarhugsun, annarrar grænnar atvinnustarfsemi og fjárfestingar í nýsköpun almennt. Greint verði hvaða lágmarksundirbúningsvinnu og innviðauppbyggingu þurfi til svo að ferlið við uppbyggingu slíkrar grænnar atvinnustarfsemi verði sem skilvirkast og hvatt verði til fjárfestingar. Jafnframt verði skoð¬að hvort skýra þurfi regluverk eða eftir atvikum einfalda það.
- Ábyrgð: Umhverfis-, orku og loftslagsráðuneytið.
- Framkvæmdaraðili: Landshlutasamtök sveitarfélaga og sveitarfélög.
- Dæmi um samstarfsaðila: Háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðuneyti, Landsvirkjun, Nýsköpunarsjóður, Samorka, orkufyrirtæki og háskólar.
- Tímabil: 2022–2026.
- Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Í átt að hringrásarhagkerfi, Orkustefna fyrir Ísland, aðgerðaáætlun í loftslagsmálum.
- Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður við markmið 13 og fleiri.
- Tillaga að fjármögnun: 1 millj. kr. af byggðaáætlun.